Rúnar Már Sigurjónsson lék allan leikinn fyrir Grasshopper í stóru tapi gegn Young Boys í svissnesku úrvalsdeildinni í kvöld.
Young Boys er búið að tryggja sér meistaratitlinn á meðan Grasshopper er fallið úr deildinni.
Það sást í kvöld. Young Boys náði forystunni á 23. mínútu og var 3-0 yfir í hálfleik. Staðan varð 4-0 fljótlega í seinni hálfleik en Grasshopper minnkaði muninn.
Gestirnir komust ekki lengra og í staðinn bætti Young Boys við tveimur mörkum og lokatölur því 6-1. Roger Assalé og Guillaume Hoarau skoruðu báðir tvö fyrir Young Boys.
Eins og áður segir þá er Grasshopper fallið úr deildinni. Rúnar Már er að öllum líkindum á förum frá félaginu í sumar.
Sjá einnig:
Flauta þurfti af hjá Rúnari vegna hegðunar stuðningsmanna
Athugasemdir