sun 16. maí 2021 09:30
Victor Pálsson
Hakimi: Getum sigrað Evrópu með Conte
Mynd: Getty Images
Inter Milan getur unnið allt saman undir stjórn Antonio Conte að sögn bakvarðarins Achraf Hakimi.

Hakimi er einn allra mikilvægasti leikmaður Inter en hann er reglulega orðaður við önnur félög.

Litlar líkur eru þó á að Hakimi sé á förum í sumar en hann elskar að spila fyrir Inter og Conte enda vann liðið ítölsku deildina á tímabilinu.

Liðið getur náð enn lengra að sögn leikmannsins sem er aðeins 22 ára gamall.

„Hann hringdi í mig og sagðist vilja mig. Hann spurði mig hvað ég vildi í framtíðinni og útskýrði hvernig þetta myndi fara hjá Inter. Mér leið eins og ég væri mikilvægur um leið," sagði Hakimi.

„Hérna er verkefni sem byrjar með Conte og ungum leikmönnum. Ef það heldur áfram þá getum við sigrað bæði Evrópu og Ítalíu."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner