Aaron Ramsey er opinn fyrir því að snúa aftur til Arsenal samkvæmt enskum fjölmiðlum.
Ramsey er á mála hjá Juventus á Ítalíu þessa stundina en hann kom þangað frítt frá Arsenal árið 2019.
Miðjumaðurinn hefur ekki verið fastamaður hjá Juventus þessi tvö ár en meiðsli hafa sett strik í reikninginn.
Greint er frá því að Ramsey myndi elska það að snúa aftur heim en hvort þær sögusagnir eru réttar eða ekki kemur í ljós í sumar.
Juventus er talið opið fyrir því að losna við Ramsey sem er á afar háum launum.
Athugasemdir