Það er meiri bjartsýni en nokkru sinni fyrr hjá Real Madrid að Kylian Mbappe gangi í raðir félagsins í sumar. Viðræður hafa átt sér stað undanfarna daga og gengið vel.
Samningur Mbappe við Paris St-Germain rennur út í næsta mánuði og búast Madrídingar við því að hann hafni tilboði um framlengingu og mæti á Bernabeu.
Marca segir að Mbappe sé á barmi þess að skrifa undir fimm ára samning við Real Madrid.

Mbappe sagði í gær að ákvörðun um framtíð hans yrði tilkynnt á næstunni, hann væri nánast búinn að taka ákvörðun.
Mbappe gekk í raðir PSG frá Mónakó árið 2017 og er í hópi bestu leikmanna heims.
Athugasemdir