Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 16. maí 2022 16:00
Elvar Geir Magnússon
VAR í úrslitaleik Championship umspilsins
Mynd: Getty Images
Huddersfield og Luton mætast í seinni undanúrslitaleik liðanna í umspili Championship-deildarinnar í kvöld en fyrri leikurinn endaði með jafntefli 1-1. Bæði þessi lið hafa komið skemmtilega á óvart á tímabilinu.

Sigurliðið mun mæta Nottingham Forest eða Sheffield United um sæti í úrslitaleik á Wembley þar sem barist verður um sæti í ensku úrvalsdeildinni. Forest vann 2-1 sigur í fyrri leiknum en sá seinni verður á morgun.

Í dag var tilkynnt að VAR myndbandsdómgæslukerfið verði notað í úrslitaleiknum en aldrei hefur VAR verið notað í umspilinu áður.

VAR verður einnig í úrslitaleikjum C- og D-deildarinnar.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner