Fotbolti.net
16.05.26 - 13:34
Brynjar Ingi Erluson
Jói útherji

Flick vill halda Christensen

Flick vill halda Christensen
Canon

Mynd: EPA

Danski varnarmaðurinn Andreas Christensen er að renna út á samningi hjá Spánarmeisturum Barcelona, en það er enn möguleiki á að hann verði áfram hjá félaginu.
Christensen, sem er þrítugur, kom á frjálsri sölu frá Chelsea árið 2022. Hann var mikilvægur undir stjórn Xavi, en ekki fengið sama hlutverk undir Hansi Flick og þá aðallega vegna meiðsla.

Hann var að glíma meiðsli í hásin á síðasta tímabili og spilaði aðeins fimm leiki. Í desember sleit hann krossband, en sneri aftur í leikmannahópinn fyrir síðasta leik.

Daninn mun fá mínútur í síðustu leikjunum og segist Flick þá vilja halda honum áfram á næsta tímabili.

„Auðvitað vil ég halda Christensen. Það er planið!“

„Plani er líka að leya honum að fá mínútur á morgun. Hann mun ekki byrja, en hann mun fá að spila,“
sagði Flick.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.