Fotbolti.net
16.06.16 - 13:00
Jóhann Ingi Hafþórsson

Bernardo Espinosa til Boro (staðfest)

Bernardo Espinosa (Til vinstri)

Bernardo Espinosa (Til vinstri)

Canon

Mynd: Getty Images

Middlesbrough hefur staðfest kaup á Bernardo Espinosa frá Sporting Gijon.
Hann er 26 ára Kólombíumaður en hann skrifaði undir þriggja ára samning og mun mæta til leiks á Englandi 1. júlí en þá rennur samningur hans út.

Espinosa hóf ferilinn hjá Sevilla þar sem hann spilaði sinn fyrsta leik í maí 2011, hann fór svo á lán til Racing Santander og fór að lokum til Sporting Gijon, 2013.

Á síðstu leiktíð spilaði hann 16 leiki og skoraði eitt mark þegar Gijon rétt bjargaði sér frá falli úr La Liga.

Hann er annar leikmaðurinn sem Middlesbrough fær til sín eftir að þeir unnu sér inn sæti í ensku Úrvalsdeildinni en Viktor Fischer kemur frá Ajax.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.