16.06.16 - 09:32
Elvar Geir Magnússon
Guerreiro til Dortmund en ekki Liverpool (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images

Leit Liverpool að heimsklassa vinstri bakverði heldur áfram. Greint hefur verið frá því að Jurgen Klopp og félagar reyndu að fá portúgalska leikmanninn Raphael Guerreiro.
Í morgun var hinsvegar staðfest að leikmaðurinn hefur ákveðið að ganga í raðir Borussia Dortmund.
Guerreiro yfiirgefur Lorient í Frakklandi.

Á meðfylgjandi mynd má sjá Raphael Guerreiro í baráttu við Kolbein Sigþórsson í landsleik Portúgals gegn Íslandi í vikunni.
Það hefur verið nóg að gera á skrifstofu Dortmund síðustu vikur.
Mats Hummels yfirgaf félagið til að ganga í raðir Þýskalandsmeistarana í Bayern München og þá fór Ilkay Gundogan til Manchester City.
Fréttir herma að Pierre-Emerick Aubameyang og Henrikh Mkhitaryan séu líklega einnig á förum. Hinsvegar hefur Dortmund fengið Marc Barta frá Barcelona og Sebastian Rode kom frá Bayern München.
Þá hefur Dortmund fengið tvo gríðarlega spennandi unga leikmenn: Ousmane Dembele og Emre Mor.