16.06.16 - 17:12
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Nico Gaitan til Atletico Madrid (Staðfest)

Gaitan er loksins búinn að skipta um lið

Mynd: Getty Images

Gaitan er loksins búinn að skipta um lið

Mynd: Getty Images
Atletico Madrid er búið að ná samkomulagi við Benfica um kaup á hinum argentíska Nico Gaitan.
Gaitan lék 37 leiki fyrir Benfica á nýliðnu tímabili þar sem Benfica vann tvennuna í Portúgal þriðja árið í röð.
Gaitan lék 37 leiki fyrir Benfica á nýliðnu tímabili þar sem Benfica vann tvennuna í Portúgal þriðja árið í röð.
Gaitan hefur lengi verið orðaður við Manchester United, en hann er nú á leið til Atletico Madrid.
Hann er á Copa America með Argentínu í augnablikinu og verða formsatriðin kláruð þegar hann snýr til baka úr þeirri keppni.
Ekki er búið að gefa kaupverðið upp.
Hann er á Copa America með Argentínu í augnablikinu og verða formsatriðin kláruð þegar hann snýr til baka úr þeirri keppni.
Ekki er búið að gefa kaupverðið upp.
Agreement with @SLBenfica for the transfer of @nicogaitan https://t.co/Dt09bEuH63
— Atleti English (@atletienglish) June 16, 2016
