16.06.16 - 17:30
Magnús Már Einarsson
Samúel Kári í Valerenga (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Samúel Kári Friðjónsson hefur gert þriggja og hálfs árs samning við norska úrvalsdeildarliðið Valerenga.
Ólafur Garðarsson, umboðsmaður Samúels, staðfesti þetta í samtali við Fótbolta.net í dag en þeir eru báðir staddir í Osló þar sem gengið var frá samningum.
Samúel Kári kemur til Valerenga frá Reading en hann hefur spilað í unglinga og varaliðinu þar frá því árið 2013.

Félagaskiptaglugginn í Noregi opnar 22. júlí næstkomandi en fram að því mun Samúel æfa með Valerenga og spila einhverja æfingaleiki með liðinu.
Samúel er fæddur árið 1996 en hann var í byrjunarliðinu í síðasta leik hjá U21 árs landsliðinu.
Elías Már Ómarsson er einnig á mála hjá Valerenga en hann og Samúel eru báðir uppaldir hjá Keflavík.