The Athletic greinir frá því að Arsenal hafi hafnað tilboði frá Aston Villa í sóknartengiliðinn efnilega Emile Smith-Rowe sem ruddi sér leið inn í aðallið Arsenal á leiktíðinni.
Smith-Rowe er tvítugur og skoraði 4 mörk í 33 leikjum á nýliðnu tímabili. Hann á 24 leiki að baki fyrir yngri landslið Englands.
Það er ljóst að Arteta vill halda ungstirninu hjá Arsenal og það verður spennandi að fylgjast með honum í stærra hlutverki á næstu leiktíð.
Aston Villa átti fínt tímabil í úrvalsdeildinni og endaði aðeins sex stigum á eftir Arsenal um miðja deild. Einn af þeirra bestu mönnum var markvörðurinn Emiliano Martinez sem var keyptur frá Arsenal síðasta sumar.
Athugasemdir