Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   mið 16. júní 2021 20:18
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
„Hvar er þessi Paul Pogba hjá Manchester United allt árið?"
Mynd: Getty Images
Paul Pogba var maður leiksins í gær þegar Frakkland lagði Þýskaland að velli í dauðariðlinum á EM.

Pogba var stórkostlegur á miðsvæðinu hjá Frökkum sem þykja líklegir til að fara alla leið á EM.

Christoph Kramer, sem varð heimsmeistari 2014 með Þýskalandi, var sérfræðingur hjá ZDF í tengslum við leikinn og hann var hrifinn af því sem hann sá frá Pogba. Hann velti því hins vegar upp af hverju Pogba spilaði ekki alltaf svona fyrir Manchester United, félagslið sitt.

„Hvar er þessi Paul Pogba hjá Manchester United allt árið? Hvar er hann allt árið? Hann var í heimsklassa í dag," sagði Kramer.

Pogba sýnir oft á tíðum flotta takta með Man Utd en það vantar stöðugleikann. Það er spurning með framtíð hans hjá félaginu þar sem samningur hans rennur út eftir næstu leiktíð.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner