Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   mið 16. júní 2021 12:32
Ívan Guðjón Baldursson
Metinho til Man City (Staðfest) - Fer út að láni
Englandsmeistarar Manchester City eru búnir að tryggja sér hinn 18 ára gamla Metinho frá Fluminense í Brasilíu.

Metinho þykir gríðarlega mikið efni og spilaði sinn fyrsta keppnisleik fyrir meistaraflokk Fluminense fyrr á árinu.

Metinho er öflugur miðjumaður og fimmti leikmaðurinn sem Man City krækir í frá Suður-Ameríku á einu ári. Kayky gekk í raðir City á dögunum en fyrir það komu Yan Couto, Dario Sarmiento og Diego Rosa allir til félagsins.

Metinho verður að öllum líkindum lánaður út til félags í eigu City Football Group. Troyes í frönsku B-deildinni virðist vera líklegasti áfangastaður hans.

Athugasemdir
banner