Fabrizio Romano greinir frá því að AC Milan sé búið að ganga frá kaupum á Fikayo Tomori frá Chelsea.
Milan greiðir 28,5 milljónir evra fyrir Tomori sem kom að láni í vetur og stóð sig frábærlega.
Þessi 23 ára gamli miðvörður mætti til Mílanó og var ekki lengi að hirða byrjunarliðssætið af Alessio Romagnoli.
Milan nýtti kaupákvæði í lánssamningi Tomori eftir að hafa reynt að fá hann ódýrara. Chelsea vildi ekki selja varnarmanninn en neyddist til þess.
Athugasemdir