Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
   mið 16. júní 2021 19:29
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sergio Ramos fer frá Real Madrid (Staðfest)
Kveður spænska stórveldið.
Kveður spænska stórveldið.
Mynd: Getty Images
Varnarmaðurinn Sergio Ramos er á förum frá Real Madrid í sumar. Ítalski fjölmiðlamaðurinn Fabrizio Romano greinir frá þessu á Twitter í kvöld.

Ramos hefur spilað með Real Madrid undanfarin 16 ár og er goðsögn hjá félaginu.

Samningur hans í Madríd er að renna út og hann mun ekki endurnýja hann. Carlo Ancelotti, nýr stjóri Real Madrid, reyndi að sannfæra hann en það gekk ekki upp.

Ramos, sem er 35 ára gamall, ætlar að prófa eitthvað nýtt áður en ferillinn klárast.

Það verður athyglisvert að sjá hvað þessi mikli sigurvegari tekur sér fyrir hendur. Hann mun á morgun formlega tilkynna það að hann sé á förum frá Madrídarastórveldinu.

Uppfært 19:30: Félagið hefur staðfest þetta.
Athugasemdir
banner
banner
banner