Fotbolti.net
16.06.26 - 11:26
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

De Zerbi vill fá Tonali

De Zerbi vill fá Tonali
Canon

Mynd: EPA

Tottenham vill fá Sandro Tonali, miðjumann Newcastle, og er hann efsta nafn á óskalista Roberto De Zerbi. Stjórinn vill fá inn leikstjórnanda á miðjuna.

Ítalinn er samningsbundinn til 2029 og myndi Newcastle einungis taka risatilboði í kappann því ekkert riftunarákvæði er í samningnum.
Tonali er einn besti miðjumaður í úrvalsdeildinni og hefur verið orðaður við Arsenal, Manchester City, Juventus, Real Madrid og Manchester United.

Slúðrað er um að Newcastle vilji fá 100 milljónir evra fyrir kappann.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.