Karl Friðleifur framlengir við Víking

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Karl Friðleifur Gunnarsson hefur framlengt samning sinn við Víking til ársins 2029. Fyrri samningur var í gildi út núverandi tímabil.
Karl, sem er 24 ára hægri bakvörður, hefur verið lykilmaður í liði Víkings síðustu ár. Hann gekk til liðs við félagið frá uppeldisfélaginu Breiðabliki árið 2021.

Karl hefur unnið þrjá Íslandsmeistaratitla með liðinu og fjóra bikarmeistaratitla.
Á yfirstandandi tímabili hefur Karl byrjað alla leiki Víkings í Bestu deildinni og skorað tvö mörk ásamt því að leggja upp tvö til viðbótar.