Þjálfari Írans: Erum „kúgaðasta“ liðið á HM

Amir Ghalenoei, landsliðsþjálfari Írans.

Mynd: EPA

Amir Ghalenoei landsliðsþjálfari Írans segir að sitt lið sé „kúgaðasta“ liðið á HM. Hann ræddi við fjölmiðla eftir 2-2 jafntefli gegn Nýja-Sjálandi í Los Angeles í nótt.
Hann segir að liðið hafi búist við því að gista í Los Angeles eftir leikinn og taka létta æfingu morguninn eftir. Þeir hafi hinsvegar fengið skipun strax eftir leik um að snúa tafarlaust aftur á æfingasvæði sitt sem er í Mexíkó.
Íranska liðið ætlaði upphaflega að dvelja í Arizona yfir mótið en þurftu að færa sig frá Bandaríkjunum og yfir til Mexíkó.
„Eftir leikinn sögðu þeir að við okkur að við þyrftum að fara strax. Við vorum beðnir um að fara upp í flugvél og snúa aftur til Tijuana. Það truflar okkur. Við neyðumst til að fara til baka snemma. Staða okkar er sífelld gerð erfiðari, fleiri hindranir settar fyrir okkur. Við látum það ekki stöðva okkur í að gera okkar besta," segir Ghalenoei.

TENGT EFNI
HM: Nýsjálendingar komu á óvart
Infantino heimsótti liðið eftir leik
Óvissa ríkti um þátttöku Írans á HM vegna stríðsins sem er í gangi í Mið-Austurlöndum og vegna öryggisráðstafana í Bandaríkjunum. Gianni Infantino forseti FIFA heimsótti íranska liðið í búningsklefann eftir leikinn í nótt.
Nokkrir af starfsmönnum íranska fótboltasambandsins fengu ekki vegabréfsáritun til Bandaríkjanna og íranska sambandið gagnrýndi fyrir mót að miðar til stuðningsmanna liðsins voru afturkallaðir.
Íran snýr aftur til Los Angeles til að mæta Belgíu 21. júní og mun svo leika gegn Egyptalandi í Seattle þann 27. júní.
Aðrir ráða ferðinni
„Ég veit ekki af hverju okkur er skipað að snúa strax til baka. Mér finnst þetta mjög skrítið. Það er eins og aðrir séu að sjá um skipulagið okkar. Við ætluðum að mæta hingað tveimur dögum fyrir leik en fengum það ekki. Við ætluðum að gista hér nóttina eftir leik, taka létta æfingu og ferðast svo um hádegið," segir Ghalenoei.
„Mér finnst við kúgaðasta liðið á HM. Fótboltasambandið okkar er ekki á staðnum, fjölmiðlafólkið okkar er ekki hérna, stjórnin er ekki hér."

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!