Fleiri félög hafa áhuga á Guðmundi Andra

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fótbolti.net sagði frá því í gær að Þór hefði mikinn áhuga á Guðmundi Andra Tryggvasyni leikmanni KR.
Þór er ekki eina félagið sem horfir til Guðmundar Andra því ÍBV, FH og Keflavík hafa einnig áhuga á sóknarmanninum. Hann er auðvitað sonur Eyjamannsins Tryggva Guðmundssonar, næstmarkahæsta manns í sögu efstu deildar.

TENGT EFNI
Þór hefur mikinn áhuga á Guðmundi Andra
Guðmundur Andri (1998) hefur talsvert glímt við meiðsli síðustu misseri en var kominn á fínt skrið undir lok síðasta tímabils og hjálpaði KR að halda sæti sínu í deildinni.
Hann hefur komið við sögu í þremur síðustu leikjum KR eftir að hafa ekki spilað í átta leikjum þar á undan.
Hann hefur komið við sögu í þremur síðustu leikjum KR eftir að hafa ekki spilað í átta leikjum þar á undan.