Hilmir Rafn að yfirgefa norsku meistarana

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hilmir Rafn Mikaelsson er samkvæmt heimildum Fótbolta.net nálægt því að yfirgefa norsku meistarana í Viking.
Tékkneska félagið Sigma Oloumouc hefur verið með augastað á Hilmi í talsverðan tíma, buðu í framherjann í vetur og er hann nú á leið í læknisskoðun í Tékklandi.
Tékkneska félagið Sigma Oloumouc hefur verið með augastað á Hilmi í talsverðan tíma, buðu í framherjann í vetur og er hann nú á leið í læknisskoðun í Tékklandi.

TENGT EFNI
Höfnuðu stóru tilboði í Hilmi Rafn - Hissa hversu hátt það var
Hilmir er frá Hvammstanga og einnig uppalinn hjá Fjölni. Hann er U21 landsliðsmaður, fæddur árið 2004 og fór árið 2021 til Venezia á Ítalíu. Hann var tímabilið 2024 hjá Kristiansund en í fyrra var hann hluti af meistaraliði Viking.
Sigma endaði í 7. sæti tékknesku deildarinnar í vor. Hilmir hefur einungis komið við sögu í þremur deildarleikjum og tveimur bikarleikjum á tímabilinu. Í þeim skoraði hann eitt mark og lagði upp eitt.