Áhugi á öðrum leikmanni KR erlendis frá

Krummi hefur verið lykilmaður í liði KR á tímabilinu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Krummi hefur verið lykilmaður í liði KR á tímabilinu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sænsk félög hafa sýnt Hrafni Tómassyni, leikmanni KR, áhuga. Frá þessu var greint í útvarpsþættinum Fótbolta.net síðastliðinn laugardag.
Hrafn, eða Krummi eins og hann er oftast kallaður, er 22 ára miðjumaður sem hefur komið frábærlega inn í lið KR á tímabilinu.
Krummi sleit krossband árið 2024 en hann fékk mikið lof fyrir frammistöðu sína hjá Þrótti í Lengjudeildinni í fyrra þar sem hann var á láni.

Greint hefur verið frá því að Amin Cosic sé á förum frá KR fyrir hugsanlegt metfé. Líklegast er að Amin fari til Viking Stavanger í Noregi og er verðmiðinn sagður vera um 80 milljónir króna.