Fotbolti.net
16.06.26 - 16:50
Elvar Geir Magnússon

Hættir með Portúgal eftir HM

Roberto Martínez hættir með Portúgal eftir HM.

Roberto Martínez hættir með Portúgal eftir HM.

Canon

Mynd: EPA

TalkSport segir að Roberto Martínez hafi ákveðið að hætta sem landsliðsþjálfari Portúgals eftir HM.
Portúgal leikur sinn fyrsta leik á HM á morgun, þegar liðið mætir Kongó. Martínez ætlar ekki að endurnýja samning við portúgalska sambandið, sama hvernig mun ganga á mótinu.

Martínez hefur verið með portúgalska landsliðið í þrjú ár en hann ætlar að halda öllum möguleikum opnum og er opinn fyrir því að taka við félagsliði eða öðru landsliði.

Martínez stýrði áður Belgíu en Belgar enduðu í þriðja sæti 2018 en komust ekki upp úr riðlinum 2022.
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.