Oliver að rifta í Póllandi - Á leið heim?

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Oliver Stefánsson (2002) er samkvæmt heimildum Fótbolta.net að vinna í því að fá sig lausan frá pólska félaginu GKS Tychy. Samkvæmt heimildum Fótbolta.net er áhugi á honum bæði frá íslenskum félögum og í Noregi.
Skagamaðurinn gekk í raðir pólska B-deildar félagsins síðasta haust frá ÍA og skrifaði þá undir þriggja ára samning.
Skagamaðurinn gekk í raðir pólska B-deildar félagsins síðasta haust frá ÍA og skrifaði þá undir þriggja ára samning.

TENGT EFNI
„Hefur verið erfitt á tímum en aldrei verið spurning hvað ég vil gera í mínu lífi"
Hann er örvfættur, hávaxinn og sterbkyggður varnarsinnaður leikmaður sem spilað hefur bæði í vörninni og á miðjunni.
Hann er uppalinn hjá ÍA en hefur einnig verið á mála hjá Norrköping og Breiðabliki á sínum ferli.
Hann á að baki 21 leik fyrir yngri landsliðin og var á sínum tíma fyrirliði U17. Hann kom við sögu í 13 deildarleikjum í vetur og lagði upp eitt mark fyrir GKS sem endaði í neðsta sæti deildarinnar.