Fotbolti.net
16.06.26 - 13:13
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net

Leikmenn voru ósáttir með ákvörðun stjórnar

Leikmenn voru ósáttir með ákvörðun stjórnar
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Stjarnan ákvað að fara í þjálfarabreytingar eftir tapið gegn Aftureldingu í Mjólkurbikarnum síðasta miðvikudag. Jökull Elísabetarson var látinn fara á föstudag eftir um þrjú ár sem aðalþjálfari liðsins og Jón Þór Hauksson var tilkynntur sem nýr þjálfari liðsins á laugardag.
Samkvæmt heimildum Fótbolta.net voru leikmenn Stjörnunnar mjög ósáttir með ákvörðun stjórnar. Þetta var rætt í útvarpsþættinum Fótbolti.net á laugardag. Þeir voru ekki hafðir með í ráðum þegar ákvörðunin var tekin, vildu mikið hafa Jökul áfram í starfi og höfðu gefið það út í viðtölum. Það er ekki algengt að þjálfarar séu látnir fara þegar hópurinn er jafn þéttur á bakvið þjálfarann og raunin var.

„Auðvitað var þetta þung helgi fyrir leikmannahópinn. Tengjast Jökli vel og stór hluti af hópnum hefur unnið náið með Jökli í nokkur ár. Menn sjá eftir honum, það eru alltaf erfiðar tilfinningar sem fylgja svona hlutum," sagði Jón Þór í viðtali við Fótbolta.net í gær.

Út frá úrslitum og spilamennsku Stjörnunnar er hins vegar ekki erfitt að sjá hvers vegna stjórnin tók ákvörðunina. Gengið hefur verið langt undir væntingum, spilamennskan ekki sannfærandi og kjarni stuðningsmanna hafði kallað eftir breytingum.

Framundan hjá Stjörnunni er leikur gegn Breiðabliki í kvöld og seinna í dag kemur í ljós hver andstæðingur liðsins verður í 1. umferð forkeppninnar í Sambandsdeildinni.
Leikmenn voru ósáttir með ákvörðun stjórnar
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Útvarpsþátturinn - Þjálfaraskipti í Garðabæ og Einar Örn um HM

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.