Endurskoðað fyrir dómi hvort hleypa eigi Partey inn í Kanada

Thomas Partey.

Mynd: EPA

Thomas Partey.

Mynd: EPA
Miðjumaðurinn Thomas Partey mun væntanlega missa af fyrsta leik Gana á HM, gegn Panama í Toronto á morgun, þar sem hann fékk ekki leyfi til að fara inn fyrir landamæri Kanada.
Ganverska fótboltasambandið hefur sótt um endurskoðun á þessari ákvörðun og verður málið tekið fyrir dómi seinna í dag.

TENGT EFNI
Segir veikar forsendur fyrir því að hleypa Partey ekki inn í Kanada - „Hefur ekki verið fundinn sekur“
Partey hefur mikið verið í fréttum undanfarin ár þar sem hann hefur verið sakaður um nauðganir og kynferðisbrot af fjórum konum.
Á vef kanadískra stjórnvalda kemur fram að einstaklingum sem hafa framið eða verið sakfelldir fyrir glæp kunni að vera meinaður aðgangur að landinu. Partey hefur verið ákærður en bíður enn réttarhalda og hefur ekki verið sakfelldur. Hann fékk samt sem áður ekki vegabréfsáritun til að komast inn í landið.
Gana er líka með Englandi og Króatíu í riðli en þeir leikir verða báðir í Bandaríkjunum.
Partey er 32 ára fyrrum leikmaður Arsenal en hann leikur nú fyrir Villarreal á Spáni.

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!