Fotbolti.net
16.06.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

Klopp fær stjóra Rangers til Salzburg

Klopp fær stjóra Rangers til Salzburg
Canon

Mynd: EPA

Austurríska félagið hefur gengið frá viðræðum við skoska félagið Rangers um þýska þjálfarann Danny Röhl.
Röhl tók við Rangers af Russell Martin í október á síðasta ári og stýrði liðinu í þriðja sæti deildarinnar.

Þá datt liðið úr leik í undanúrslitum deildabikarsins og óvænt í 8-liða úrslitum bikarsins.

Rangers hefur verið að líta í kringum sig síðustu vikur og þegar Salzburg hafði samband þá ákvað skoska félagið að heimila honum að fara til Austurríkis. Jürgen Klopp, yfirmaður fótboltamála hjá Red Bull, var ákveðinn í að fá Röhl sem var efstur á óskalistanum.

Í staðinn ætlar Rangers að fá Derek McInnes til að taka við, en hann mun gera þriggja ára samning við félagið.

McInnes gerði frábæra hluti með Tómas Bent Magnússon og félaga í Hearts á síðustu leiktíð, en liðið hafnaði í öðru sæti deildarinnar. Liðið tapaði titlinum í lokaumferðinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.