Neymar ekki með á æfingu og missir líklega af leiknum gegn Haítí

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Brasilíska stórstjarnan Neymar var ekki með á æfingu landsliðsins í undirbúningi fyrir leikinn gegn Haítí á heimsmeistaramótinu. Þetta kemur fram í brasilískum miðlum.
Carlo Ancelotti valdi Neymar í 26-manna leikmannahóp brasilíska landsliðsins fyrir heimsmeistaramótið í síðasta mánuði.
Neymar hefur verið að glíma við meiðsli og missti meðal annars af fyrsta leiknum gegn Marokkó og er nú útlit fyrir að hann missi af næsta leik sem er gegn Haítí á föstudag.
Globo Esporte segir að hann hafi ekki verið á æfingu liðsins í gær og spá margir miðlar því jafnvel að hann verði ekki með í riðlakeppninni.
Neymar er ein skærasta stjarna í sögu Brasilíu. Hann er markahæsti maður landsliðsins og hefur átt afar farsælan feril hjá Barcelona og Paris Saint-Germain.

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!