Fotbolti.net
16.06.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

Renard að taka við Túnis

Renard að taka við Túnis
Canon

Mynd: EPA

Franski blaðamaðurinn Romain Molina segir að fótboltasamband Túnis hafi síðasta sólarhringinn átt í viðræðum við Herve Renard um að taka við karlalandsliðinu sem spilar á HM.
Túnis tók dramatíska ákvörðun og rak Sabri Lamouchi eftir 5-1 tapið í fyrsta leik þjóðarinnar í riðlakeppni HM.

Mondher Kebaier var sagður eiga að stýra liðinu út heimsmeistaramótið, en samkvæmt Romain Molina er það ekki neglt í stein.

M6 greindi fyrst frá því að Herve Renard, sem stýrði Marokkó á HM 2018 og Sádi-Arabíu á HM 2022, væri í viðræðum um að taka við landsliði Túnis og Molina tekur undir það.

Talið er að Renard verði kynntur sem nýr þjálfari Túnis síðar í dag og að hann stýri liðinu gegn Japan aðfaranótt sunnudags.

Molina telur forráðamenn knattspyrnusambandsins vera að reyna að bjarga sér fyrir horn með því að fá þekktan þjálfara í starfið. Að hans mati liggur vandinn í túniskum fótbolta mun dýpra og þessi ráðning ein og sér leysi ekki þau vandamál.
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.