Íranska fótboltasambandið segir að mótshaldarar HM hafi afturkallað miða á leiki íranska landsliðsins sem seldir voru til stuðningsmanna liðsins.
Íran á að mæta Nýja-Sjálandi þann 15. júní og Belgíu þann 21. júní í Los Angeles áður en liðið leikur gegn Egyptalandi í Seattle þann 26. júní.
Íran á að mæta Nýja-Sjálandi þann 15. júní og Belgíu þann 21. júní í Los Angeles áður en liðið leikur gegn Egyptalandi í Seattle þann 26. júní.
Íranska sambandið segir að reglur FIFA kveði á um að hvert samband sem tekur þátt í HM fái 8% af miðunum á hvern leik sinn til að úthluta til stuðningsmanna.
Það segist hafa byrjað að selja miða sem það geti svo ekki úthlutað til stuðningsmanna sem hafa þegar skipulagt ferðalag sitt.
„Að svipta íranska stuðningsmenn aðgangi að úthlutun miða stríðir gegn anda alþjóðlegra keppna og meginreglunni um jafnrétti meðal þátttökulanda," segir í yfirlýsingu frá íranska sambandinu.
Óvissa hefur verið ríkjandi um þátttöku Írans á HM vegna stríðsins í Mið-Austurlöndum og samskipta við Bandaríkin.
Íranska liðið dvelur í Mexíkó meðan HM stendur en Claudia Sheinbaum, forseti Mexíkó, segir að Bandaríkin hafi ekki viljað hýsa hópinn.
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!


