Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
banner
   þri 16. júlí 2019 19:56
Brynjar Ingi Erluson
Inkasso: Annar sigur Magna - Ten Voorde stimplaði sig inn
Rick Ten Voorde skoraði tvö fyrir Þór
Rick Ten Voorde skoraði tvö fyrir Þór
Mynd: Þór
Tveir fyrstu leikir kvöldsins í Inkasso-deild karla voru að klárast en Magni vann óvæntan 3-0 sigur á Keflavík á meðan Rick Ten Voorde skoraði bæði mörk Þórsara gegn Njarðvíkingum.

Magnamenn höfðu aðeins unnið einn leik í Inkasso-deildinni fyrir leikinn gegn Keflvíkingum en þar var breyting á í kvöld. Kristinn Þór Rósbergsson kom Magna yfir á 27. mínútu áður en Lars Óli Jessen bætti við öðru átta mínútum síðar.

Áki Sölvason skoraði svo þriðja og síðasta mark leiksins á 81. mínútu og sigur Magna staðreynd. Lokatölur 3-0 og er Magni með 10 stig í neðsta sæti deildarinnar á meðan Keflavík er í 7. sæti með 16 stig.

Þór vann þá Njarðvík 2-1. Rick Ten Voorde kom í Þór á láni frá Víking R. á dögunum og er hann strax byrjaður að stimpla sig inn því fyrra markið hans kom á 5. mínútu áður en Jóhann Helgi Hannesson varð fyrir því óláni að skora í eigið net.

Ten Voorde skoraði hins vegar sigurmarkið í upphafi síðari hálfleiks og lokatölur 2-1 fyrir Þór. Þórsarar eru í öðru sæti með 23 stig en Njarðvík í 10. sæti með 10 stig.

Úrslit og markaskorarar:

Keflavík 0 - 3 Magni
0-1 Kristinn Þór Rósbergsson ('27 )
0-2 Lars Óli Jessen ('35 )
0-3 Áki Sölvason ('81 )

Þór 2 - 1 Njarðvík
1-0 Rick Ten Voorde ('5 )
1-1 Jóhann Helgi Hannesson ('10 , sjálfsmark)
2-1 Rick Ten Voorde ('46 )
Athugasemdir
banner
banner
banner