Fotbolti.net
16.08.15 - 17:36
Arnar Geir Halldórsson

Abdul Baba Rahman til Chelsea (Staðfest)

Nýjasti liðsmaður Chelsea

Nýjasti liðsmaður Chelsea

Canon

Mynd: Getty Images

Englandsmeistarar Chelsea hafa gengið frá kaupunum á Abdul Baba Rahman frá þýska úrvalsdeildarliðinu Augsburg.
Þessi félagaskipti hafa legið lengi í loftinu eða allt frá því að Chelsea seldi Filipe Luis aftur til Atletico Madrid fyrr í sumar.

Rahman er 21 árs vinstri bakvörður sem á 11 landsleiki að baki fyrir Gana.

Hann lék 31 leik fyrir Augsburg í Bundesligunni á síðustu leiktíð og hjálpaði liðinu að tryggja sér sæti í Evrópudeildinni.

Rahman er þriðji leikmaðurinn sem gengur til liðs við Chelsea í sumar en áður hafði Jose Mourinho náð í þá Asmir Begovic og Radamel Falcao.

Heimild: Chelsea

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.