Philippe Coutinho er ekki í leikmannahópi Barcelona sem er að keppa við Athletic Bilbao í fyrstu umferð spænsku deildarinnar.
Coutinho er ekki í hópnum þrátt fyrir meiðsli Lionel Messi og segja spænskir fjölmiðlar hann vera á leið til Bayern München á lánssamning.
Coutinho var í upprunalega 19-manna hópnum sem átti að ferðast til Bilbao en er hvorki í byrjunarliðinu né á bekknum.
Talið er að félagaskiptin verði staðfest snemma í næstu viku og að Coutinho gæti verið klár fyrir næsta leik Bayern.
Bayern er þessa stundina að spila við Hertha Berlin og á næst leik við Schalke um næstu helgi.
Uppfærsla: Guillermo Amor, stjórnarmaður hjá Barcelona, staðfesti í viðtali við Movistar+ rétt í þessu að félögin hafi komist að samkomulagi. Coutinho þarf aðeins að gangast undir læknisskoðun hjá Þýskalandsmeisturunum.
Athugasemdir