Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
   fös 16. ágúst 2019 21:22
Ívan Guðjón Baldursson
Jökull fékk tvö mörk á sig gegn Man Utd - Árni ónotaður
Jökull á framtíðina fyrir sér.
Jökull á framtíðina fyrir sér.
Mynd: Twitter
Jökull Andrésson var á milli stanganna hjá varaliði Reading sem tapaði 2-0 fyrir varaliði Manchester United í varaliðadeildinni fyrr í kvöld.

Reading er með afar sterkt varalið sem vann 6-0 gegn Newcastle í fyrstu umferð.

Varalið Rauðu djöflanna er þó engu síðra og vann 5-0 gegn West Brom í fyrstu umferð.

Man Utd U23 2 - 0 Reading U23
1-0 D'Mani Bughail-Mellor ('12)
2-0 James Garner ('76)

Árni Vilhjálmsson var þá ónotaður varamaður er Termalica B-B tapaði fyrir Chojniczanka í pólsku B-deildinni.

Liðin mættust í fjórðu umferð og er Termalica áfram á toppinum með níu stig.

Termalica var betri aðilinn allan leikinn og heimamenn í Chojniczanka heppnir að halda út.

Árni hefur aðeins fengið að spila níu mínútur með Termalica hingað til og virðist ekki vera í byrjunarliðsáformum þar á bæ.

Cohjniczanka 1 - 0 Termalica B-B
1-0 M. Obrocnik ('3)
Rautt spjald: M. Obrocnik, Chojniczanka ('60)
Athugasemdir
banner
banner