„Þetta er mikið áfall fyrir Onel Hernandez," segir Daniel Farke, stjóri nýliða Norwich í ensku úrvalsdeildinni.
Þar er hann að tala um fréttir af meiðslum Kúbumannsins Onel Hernandez.
„Hann rann á heimili sínu og datt á hnéð. Það eru sködduð liðbönd og hann verður frá í þrjá mánuði, hann þarf kannski á aðgerð að halda."

Hernandez kom af bekknum þegar Norwich tapaði 4-1 gegn Liverpool í ensku úrvalsdeildinni um síðustu helgi. Þessi 26 ára vængmaður spilar ekki á næstunni.
Norwich á leik gegn Newcastle á morgun.
Athugasemdir