Zinedine Zidane, þjálfari Real Madrid, segist vera tilbúinn að treysta á Gareth Bale á komandi tímabili.
Eden Hazard, sem kom til Real Madrid í sumar, meiddist á æfingu í dag og verður ekki með í fyrstu umferð La Liga gegn Celta Vigo á morgun.
Zidane sagði fyrr í sumar að Bale mætti fara og leikmaðurinn var nálægt því að fara til Jíangsu Suning í Kína á dögunum.
Nú er annað hljóð komið í Zidane og hann virðist tilbúinn til að gefa Bale tækifæri á komandi tímabili.

„Það leit út fyrir að hann væri að fara en núna er hann hér og ég treysti á hann eins og alla aðra leikmenn í hópnum," sagði Zidane á fréttamannafundi í dag.
Athugasemdir