Atli Sveinn þjálfari Fylkis hafði yfir litlu að gleðjast, enda 0-3 tap á heimavelli gegn Víkingum í kvöld.
Þetta var slæmt, mjög slæmt að fá 0-3 skell á heimavelli. Við gefum tvö mörk sem er einfalt að koma í veg fyrir sem við réttum þeim á silfurfati. Ég er þó ósáttur því við áttum að fá jöfnunarmark í fyrri hálfleik þegar Þórður skorar en er flaggaður rangstæður en er það ekki, er búinn að kíkja á það. Heilt yfir voru Víkingarnir bara betra liðið.

Lestu um leikinn: Fylkir 0 - 3 Víkingur R.
Þjálfarar Fylkis hafa verið að breyta byrjunarliðið í kjölfar þess að fá inn reynslubolta, var ekkert erfitt að kippa ungum mönnum út úr liði.
Arnór Borg var bara meiddur í kvöld og ekki leikfær en jú, það var mjög erfið ákvörðun að taka Orra Svein úr liðinu og maður bara stendur og fellur með því.
Næsti leikur er stór, við Stjörnuna sem eru líka á kafi í fallbaráttu.
Já, það er sex stiga leikur svokallaður og þar verðum við að mæta allt öðruvísi til leiks en í dag.
Fylkir hafa ekki unnið síðan 13.júlí, er þjálfarateymið farið að finna hita undir stólum sínum?
Neinei, en þú veist að við erum fyrstir til að vita það að við berum ábyrgð á gengi liðsins, við vitum að við berum ábyrgð á upplegginu og stöðunni.
Nánar er rætt við Atla í viðtalinu sem fylgir.
Athugasemdir