Newcastle á eftir Scalvini - Barcelona snýr sér aftur að Díaz - Tottenham vill belgískan miðvörð
Hemmi Hreiðars: Rosalegur karakterssigur
Aðalsteinn Jóhann: Ég hef ekki hugmynd um það
Gylfi Þór: Vonandi verður þetta jákvætt í lok tímabilsins
Lárus Orri: Frekar fúllt að labba héðan í burtu með ekkert stig
Eyjamenn stöðvuðu blæðinguna - „Maður er búinn að bíða eftir því"
Sölvi Geir: Ætla að vona að þetta sé að einhverju leyti vellinum að kenna
Haraldur Einar: Vaknaði ferskur og írskir dagar
Davíð Smári ósáttur með stóra ákvörðun - „Ofboðslega sorglegt"
Rúnar Kristins: Ég skaut fastar en hann bæði með hægri og vinstri
Valsmenn fengu góðan stuðning á Ísafirði - „Það skiptir máli"
Freysi Sig: Hinn Hornfirski Messi
Jóhann Birnir: Þurfum að vera með fókus á það sem við erum að gera
Árni Freyr: Vorum litlir í okkur og náðum ekki að höndla svona barning
Bergvin stóð við stóru orðin - „Gaman að hafa smá banter í þessari deild"
Gunnar Már: Það var eins og við vorum manni færri
Gústi Gylfa: Rautt spjald snýst ekkert um agavandamál
Farið á þrjú stórmót og þetta er besta umhverfið
„Hvað gerðist ekki í þeim leik?"
Ræða forsetans gladdi - „Við sögðum allt sem lá á hjartanu"
Sveindís: Veit ekki hvort þeir hafi séð þetta fyrir sér fyrir nokkrum árum
banner
   mán 16. september 2019 20:33
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Gunnar Þorsteins: Stefnum hraðbyrði að jafnteflismetinu
Gunnar í leik með Grindavík.
Gunnar í leik með Grindavík.
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
„Við stefnum hraðbyrði á að jafna jafnteflismetið í deildinni. Við erum komnir með tíu og það þarf 12 til að jafna," sagði Gunnar Þorsteinsson, fyrirliði Grindavíkur, eftir jafntefli gegn ÍA í Pepsi Max-deildinni í kvöld.

Lestu um leikinn: ÍA 1 -  1 Grindavík

„Saga sumarsins. Fyrsta alvöru tilraunin hjá mótherjanum er upp í vinkilinn. Mér fannst við spila að mörgu leyti mjög vel og mögulega var þetta einn af okkar betri leikjum í sumar."

Eftir jafnteflið er Grindavík sex stigum frá öruggu sæti þegar liðið á tvo leiki eftir. Það þarf allt að ganga upp til þess að liðið haldi sér upp í Pepsi Max-deildinni.

„Það er súrt að ná bara jafntefli þar sem við þurftum bráðnauðsynlega á þremur stigum að halda. Við þurfum bara að bíða eftir næsta leik."

„Við getum bara ekki skorað. Zeba er eini leikmaður liðsins sem skorar. Hann er hafsent og þá veistu að þú ert í tómu tjóni," sagði Gunnar.

Viðtalið er hér að ofan, en þar segir Gunnar að hann ætli að virða samning sinn við Grindavík sem er út næsta tímabil.
Athugasemdir
banner
banner