Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 16. september 2019 19:50
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Leikmönnum Aston Villa lenti saman
Mynd: Getty Images
Það er kominn hálfleikur í leik Aston Villa og West Ham í ensku úrvalsdeildinni. Staðan er enn markalaus.

Það athyglisverðasta sem gerðist í fyrri hálfleiknum var þegar Tyrone Mings og Anwar El Ghazi, liðsfélögum hjá Aston Villa, lenti saman.

Atvikið má sjá hérna.

Mings var ósáttur með það hversu latur El Ghazi var að vinna til baka. Þegar Mings lét El Ghazi heyra það, þá brást Hollendingurinn illur við og setti höfuð sitt upp að höfði Mings. Hvorugur þeirra fékk refsingu.

Það er ekki einsdæmi að liðsfélögum lendi saman. Það var frægt atvik þegar Lee Boywer og Kieron Dyer, leikmenn Newcastle, byrjuðu að slást í miðjum leik árið 2005. Þeir voru báðir reknir út af.


Athugasemdir
banner
banner
banner