Sadio Mane, leikmaður Liverpool, segist vera búinn að sættast við Mohamed Salah eftir að hafa verið brjálaður út í hann í leik gegn Burnley fyrir tveimur vikum.
Mane var ósáttur við að fá ekki sendingu frá Salah og lét óánægju sína í ljós á varamannabekknum eftir að hann var tekinn út af.
Mane var ósáttur við að fá ekki sendingu frá Salah og lét óánægju sína í ljós á varamannabekknum eftir að hann var tekinn út af.
„Atvikið með Salah? Það er gleymt. Stundum þarftu að segja hluti beint við fólk," sagði Mane.
„Það eru hlutir sem gerast í fótbolta og stundum gerist það að ég gef ekki sendingu. Við erum búnir að sættast og erum jafn góðir vinir og við vorum áður."
Mane skoraði tvívegis gegn Newcastle um helgina og Salah skoraði síðan þriðja markið í 3-1 sigri.
— Mohamed Salah (@MoSalah) September 13, 2019
Athugasemdir