Enrique efstur á lista Man Utd - Hættir Pep hjá City í sumar? - Man Utd ætlar ekki að lána Rashford aftur til Barca
„Flottasta treyja sem við höfum spilað í"
„Fór frá því að spila yfir í það að mega ekki vera með á æfingum“
Sölvi: Teljum okkur vera með þannig hóp í ár
Stærsti samningur í sögu Víkings
Gylfi vonast til að vera mættur til að vera í landsliðinu - „Vonandi sem lengst“
Jökull: Sumt var full harkalegt
Adolf Daði: Ber miklar tilfinningar til Stjörnunnar
Jói Kalli: Skiptir máli þegar deildin byrjar
Arnar: Þurfum að taka doktorsprófið í að verða alvöru lið
Siggi Höskulds: Megum ekki vera svona barnalegir í sumar
Gummi Tyrfings: Við slökktum í þeim frá fyrstu mínútu
Allur pakkinn dró Djuric norður - „KA er stórveldið á Akureyri"
Óskar Hrafn: Forréttindi að þjálfa þessa tvo ungu menn
Jökull: Eitthvað sem enginn hjá okkur sættir sig við
Leandro: Þegar maður stendur sig vel á Íslandi skapast ýmis tækifæri
Þrenna í fyrsta leik - „Þetta er það sem okkur hefur vantað"
„Töluvert síðan að hópurinn var klár en hann var ekki að spila leikinn í dag"
Siggi Höskulds: Eins og að vera mættur á Pollamótið aftur
Hemmi Hreiðars: Ekki nálægt því að vera þannig
Erfitt að fá mínútur hjá Víkingi - „Vonandi get ég haldið þessu áfram“
   mán 16. september 2019 21:41
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Rúnar Kristins hrærður: Vildum klára þetta sjálfir
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Mér líður stórkostlega. Ég var hálf hræður hér áðan þegar dómarinn flautaði. Mér fannst við vera frábærir í þessum leik," sagði Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, í viðtali eftir sigur sinna manna gegn Val í kvöld.

Sigurinn gerir það að verkum að KR er Íslandsmeistari í 27. sinn.

Lestu um leikinn: Valur 0 -  1 KR

„Ég er ofboðslega ánægður fyrir hönd strákanna og félagsins að við séum búnir að hampa Íslandsmeistaratitlinum aftur."

Sýndu KR-ingar ekki í dag að þeir eru langbesta lið landsins?

„Ég held að við höfum gert það. Við höfum verið hvað jafnastir allra liða í allt sumar. Við sýnum á erfiðum útivelli í dag, á móti mjög góðu Valsliði, að við erum í fínu formi. Þetta var frábær leikur hjá okkur og synd að við skoruðum ekki fleiri mörk."

„Við vildum klára þetta sjálfir og við gerum það með stæl á Valsvellinum, við höfum gert það áður og ég er bara ánægður með það."

Að lokum var Rúnar spurður út í sögusagnir að hann væri að fara aftur erlendis í þjálfun. Hann svaraði þeirri spurningu neitandi.

Viðtalið er í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner