Vestri er komst í gær í undanúrslit Mjólkurbikarsins með sigri gegn Íslandsmeisturum Vals.
Vestri mætir ríkjandi Víkingi Reykjavík í undanúrslitunum, leikurinn mun fara fram á Ísafirði.
Vestri mætir ríkjandi Víkingi Reykjavík í undanúrslitunum, leikurinn mun fara fram á Ísafirði.
Lestu um leikinn: Vestri 2 - 1 Valur
Undir lok leiks í gær fékk Patrick Pedersen að líta rauða spjaldið hjá Val eftir að Elmar Atli Garðarsson, fyrirliði Vestra, hafði rifið í treyju Danans. Patrick brást illa við og fékk sitt annað gula spjald.
Elmar ræddi atvikið í viðtali við mbl.is í gærkvöldi.
„Patrick fékk boltann úti við hliðarlínuna. Ég ætlaði að brjóta á honum til að stöðva sóknina hjá þeim. Ég viðurkenni það alveg. En svo snéri hann sér við og sló til mín," sagði Elmar.
Viðtalið í heild má sjá með því að smella hér.
Athugasemdir