Serbneski miðjumaðurinn Marko Grujic vonast ennþá til að fá tækifæri til að spila meira með Liverpool í framtíðinni.
Hinn 23 ára gamli Grujic kom til Liverpool frá Rauðu Stjörnunni á 5,1 milljón punda í janúar 2016 og hefur leikið fjórtán leiki með enska félaginu síðan þá.
Grujic er annað tímabilið í röð á láni hjá Hertha Berlin í Þýskalandi en hann vonast ennþá eftir framtíð hjá Liverpool.

„Það er ekki auðvelt að verða hluti af hópnum hjá Liverpool. Ég sé sjálfan mig í rauðu treyjunni en ég þarf að verða reyndari áður en ég get klæðst henni aftur," sagði Grujic.
„Ég vil bæta mig líkamlega og taka einbeitinguna á næsta stig. Ég vil vera tilbúinn til að spila með Liverpool og komast í liðið."
Athugasemdir