Spænska félagið Real Madrid ætlar að berjast við Barcelona um spænska miðjumanninn Fabian Ruiz.
Ruiz er 23 ára gamall en hann kom til Napoli frá Real Betis á síðasta ári fyrir 30 milljónir evra.
Hann var magnaður á síðustu leiktíð og er einn besti leikmaður ítölsku deildarinnar en spænsku risarnir Barcelona og Real Madrid eru að berjast um leikmanninn.
Barcelona reyndi að kaupa Ruiz á 2 milljónir evra árið 2017 en félagið ætlaði þá að nota hann í B-liðinu. Forseti Real Betis hafnaði tilboðinu en nú virðast Börsungar tilbúnar að leggja allt í að fá hann.
Börsungar ætla að losa sig við Ivan Rakitic á meðan Madrídingar ætla að yngja upp miðjuna en Luka Modric er orðinn 34 ára gamall á meðan Toni Kroos er 30 ára.
Athugasemdir