Búið er að ganga frá þjálfaramálum hjá öllum liðum í Pepsi Max-deild kvenna fyrir næsta tímabil.
Hér að neðan má sjá þjálfaralistann.
Hér að neðan má sjá þjálfaralistann.
*Nýr þjálfari frá síðasta tímabili.
Pepsi-deild kvenna
Valur - Pétur Pétursson*
Pétur heldur áfram við stjórnvölinn hjá Íslandsmeisturunum.
Breiðablik - Þorsteinn Halldórsson
Steini Halldórs er að sigla inn í sitt sjötta tímabil með Blika en hann hefur gert frábæra hluti í Kópavogi.
Selfoss - Alfreð Elías Jóhannsson
Alfreð gerði nýjan samning við bikarmeistarana í haust.
Þór/KA - Andri Hjörvar Albertsson*
Andri hefur verið aðstoðarþjálfari undanfarin ár en hann tekur nú við af Halldóri Jóni Sigurðssyni sem er að flytja til Svíþjóðar.
Stjarnan - Kristján Guðmundsson*
Kristján gaf út eftir mót að hann taki annað tímabil í Garðabænum.
Fylkir - Kjartan Stefánsson
Kjartan gerði nýjan samning á dögunum en hann skilaði nýliðunum í 6. sæti í sumar.
ÍBV - Andri Ólafsson*
Andri tók við ÍBV af Jóni Óla Daníelssyni á dögunum.
KR - Jóhannes Karl Sigursteinsson
Jóhannes Karl tók við KR í sumar og hann heldur áfram með liðið.
Þróttur R. - Nik Chamberlain
Nik stýrði Þrótti til sigurs í Inkasso-deildinni síðastliðið sumar.
FH - Guðni Eiríksson
Guðni kom FH aftur upp í Pepsi Max-deildina í haust.
Athugasemdir