Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 16. október 2021 11:20
Brynjar Ingi Erluson
Leikmenn Steaua mega ekki láta bólusetja sig
Gigi Becali er umdeildur viðskiptamaður
Gigi Becali er umdeildur viðskiptamaður
Mynd: gtmabfootball
Forseti rúmenska liðsins Steaua Bucharest bannar leikmönnum sínum að láta bólusetja sig við kórónaveirunni.

Steaua Bucharest er eitt af stærstu liðunum í Rúmeníu. Liðið hefur unnið deildina 26 sinnum og bikarinn 24 sinnum og er liðið reglulega þátttakandi í riðlakeppnum í Evrópu.

Viðskiptamaðurinn Gigi Becali er eigandi félagsins en hann hefur lengi vel þótt umdeildur í heimalandinu. Hann rak meðal annars tvo leikmenn frá félaginu í sumar eftir einn slæman leik í Sambandsdeilds Evrópu.

Hann er alltaf litríkur þegar blaðamenn slá á þráðinn og nú hefur hann greint frá því að leikmenn liðsins megi ekki fara í bólusetningu við kórónaveirunni.

„Ef ég væri með byssu á borðinu við hliðina á bóluefninu þá myndi ég frekar skjóta mig í hausinn. Enginn hjá Steaua fær bólusetningu," sagði Becali.
Athugasemdir
banner
banner
banner