Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   lau 16. nóvember 2019 10:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Tite: Messi sagði mér að þegja
Mynd: Getty Images
Tite, landsliðsþjálfari Brasilíu, segir að Lionel Messi hafi sagt sér að þegja á meðan leik Argentínu og Brasilíu stóð í gær.

Messi skoraði eina mark leiksins þegar hann fylgdi á eftir vítaspyrnu sinni. Messi og Tite sáust skiptast á orðum í fyrri hálfleik sem endaði með því að Messi sussaði á þjálfarann sem kvartaði til dómara.

Sjá einnig: Myndband: Messi sussaði á þjálfara Brasilíu

„Ég kvartaði vegna þess að Messi hefði átt að fá gult spjald og svo sagði hann mér að þegja. Ég svaraði því með því að segja honum þá að þegja, það var allt sem gerðist," sagði Tite eftir leikinn.

„Ég vil ekki tala meira um þetta mál. Í svona leikjum þarf sterka dómara, þetta átti að vera spjald á Messi, ég hafði rétt á að kvarta."
Athugasemdir
banner
banner
banner