16.12.14 - 18:12
Magnús Már Einarsson
Margrét Lára aftur í Kristianstad (Staðfest)
Elísa framlengir

Margrét Lára Viðarsdóttir.

Mynd: Fótbolti.net - Hrafnhildur Heiða Gunnlaugsdóttir

Margrét Lára Viðarsdóttir hefur gengið til liðs við Kristianstad í Svíþjóð á ný en hún hefur skrifað undir tveggja ára samning við félaigð.
Margrét Lára eignaðist sitt fyrsta barn fyrr á þessu ári en hún hefur verið í fríi frá fótbolta frá því í lok síðasta árs.
Hin 27 ára gamla Margrét Lára kom fyrst til Kristianstad árið 2009 og hefur leikið með liðinu alla tíð síðan þá fyrir utan stutt stopp.

Margrét Lára er markahæsta landsliðskona Íslands frá upphafi með 71 mark í 94 leikjum.
Þá hefur Elísa, systir Margrétar skrifað undir nýjan samning við Kristianstad en hún kom til félagsins frá ÍBV í fyrra.
Elísabet Gunnarsdóttir þjálfar Kristianstad og Björn Sigurbjörnsson er aðstoðarþjálfari en Sif Atladóttir og Guðný Björk Óðinsdóttir hafa einnig leikið með liðinu undanfarin ár.

Elísa Viðarsdóttir.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð