Fotbolti.net
16.12.14 - 07:52
Ívan Guðjón Baldursson

Henry hættur - Genginn til liðs við Sky Sports (Staðfest)

Henry hættur - Genginn til liðs við Sky Sports (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Franska goðsögnin Thierry Henry tilkynnti það í morgun að hann hefur ákveðið að leggja fótboltaskóna á hilluna.

Henry átti farsælan feril með Monaco, Juventus, Arsenal, Barcelona og loks New York Red Bulls í MLS deildinni.
Nú hefur fyrrverandi sóknarmaðurinn, sem skoraði 51 mark í 123 landsleikjum, ákveðið að ganga til liðs við fréttateymi Sky Sports.

,,Ég á stórkostlegar minningar frá dögum mínum sem atvinnumaður og ég vona að þið hafið notið þess að horfa á mig jafn mikið og ég hef notið þess að spila,\" stendur í yfirlýsingu frá Henry.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.