16.12.20 - 13:49
Magnús Már Einarsson
Berglind Rós til Örebro (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sænska félagið Örebro hefur fengið Berglindi Rós Ágústsdóttur í sínar raðir frá Fylki.
Hin 25 ára gamla Berglind hefur verið í lykilhlutverki hjá Fylki undanfarin ár en hún hefur verið fyrirliði liðsins.
Berglind er varnar og miðjumaður en hún spilaði sinn fyrsta A-landsleik á þessu ári.

„Ég er ánægð með að skrifa undir hjá einu stöðugasta félaginu í Svíþjóð. Að semja við KIF Örebro er draumur að rætast," sagði Berglind á heimasíðu Örebro.
Fleiri erlend félög sýndu áhuga á að fá Berglindi en Rickard Johansson þjálfari Örebro sannfærði hana um að það væri rétta liðið
„Þegar Rickard hafði samband við mig og sagði mér frá framtíðaráætlunum félagsins fannst mér eðlileg að velja KIF," sagði Berglind.
Örebro endaði í 7. sæti í sænsku úrvalsdeildinni á nýliðnu tímabili. Edda Garðarsdóttir og Ólína Viðarsdóttir spiluðu með liðinu á sínum tíma.

Vertu velkomin "Begga"! 🇮🇸✅✍️
— KIF Örebro (@KIFOrebro) December 16, 2020
Vi hälsar Berglind ”Begga” Rós Ágústsdóttir välkommen till oss. Isländsk landslagsspelare som stärker upp i försvaret! Läs mer: https://t.co/SoSLBI1qld pic.twitter.com/kji2n418VF