Fotbolti.net
16.12.20 - 11:56
Magnús Már Einarsson

Bilic rekinn frá WBA (Staðfest) - Stóri Sam að taka við

Slaven Bilic.

Slaven Bilic.

Canon

Mynd: Getty Images

WBA hefur rekið knattspyrnustjórann Slaven Bilic en þetta var staðfest nú rétt í þessu.

WBA náði óvænt jafntefli gegn Manchester City á útivelli í gær en þrátt fyrir það reyndist það vera kveðjuleikur Bilic.
Króatinn hefur verið valtur í sessi í stjórastöðunni undanfarnar vikur en nýliðar WBA eru í næstneðsta sæti í ensku úrvalsdeildinni.

Bilic tók við WBA í júní 2019 og kom liðinu upp í ensku úrvalsdeildina í sumar.

Líklegast þykir að Sam Allardyce taki við WBA en næsti leikur liðsins er gegn Aston Villa á sunnudaginn. Stóri Sam er langt kominn í viðræðum við WBA að sögn enskra fjölmðila.
Klár í bátana

Klár í bátana

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.